---)------- VIÐ SKORUM Á ÞIG að taka upp hanskann og setja upp grímuna
Skylmingasamband Íslands • Skylmingamiðstöð í Laugardal • Laugardalsvelli, 104 Reykjavík Sími 510 2973 • Gsm 898 0533 • skylmingasamband@gmail.com
Skylmingasamband Íslands
Skylmingasamband Íslands er æðsti aðili um öll mál skylmingaíþróttarinnar innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Skylmingasamband Íslands er aðili að Alþjóða skylmingasambandinu, FIE.
Ólympískar skylmingar eru eins og nafnið gefur til kynna ólympísk grein, sem keppt hefur verið í frá fyrstu nútíma Ólympíuleikunum árið 1896.
Ólympískar skylmingar skiptast í þrjár undirgreinar þar sem keppt er með mismunandi sverðum, eða höggsverðum (sabre) stunguverðum (foil), lagsverðum (epée).
Ólympískar skylmingar eru íþrótt þar sem keppandinn heldur til leiks með ákveðna leikaðferð í huga en þarf svo sífellt að endurskipuleggja leik sinn með tilliti til viðbragða andstæðingsins og leikstíls hans.
Skylmingamaður þarf að hafa góða stjórn á líkamanum, gott jafnvægi og mikla samhæfingu. Einnig þarf hann að geta hugsað hratt undir miklu álagi. Skylmingar munu styrkja þig líkamlega jafnt sem andlega. Þær veita snerpu sem og jafnvægi sem aldrei fyrr.