Gunnhildur Garðarsdóttir hafnaði í 12. sæti af 59 keppendum í skylmingum með höggsverði í flokki U17 ára á heimsmeistaramótinu í Bakú í Aserbaídsjan í morgun.
Gunnhildur vann fjóra bardaga af sex í riðlakeppni og var í 14. sæti fyrir útsláttarkeppnina. Hún sat því hjá í 64 manna úrslitum og fór beint í 32ja manna úrslit. Þar lenti Gunnhildur á móti pólsku stúlkunni Malgorzata Turek og vann hana, 15:8. Í 16 manna úrslitum tapaði Gunnhildur síðan fyrir Ji Yeon Seo frá Suður-Kóreu, 10:15.
Gunnhildur keppir í U20 ára flokki á mótinu á miðvikudaginn ásamt Sigrúnu Ingu Garðarsdóttur.
Sjá úrslit mótsins á: http://www.fencingworldwide.com:8080/WAFechten/index.jsp?wettkampf=jwm10 |